Ágrip

Ágrip vegna erinda, málstofu, vinnustofu eða veggspjalds á Sálfræðiþingi 2026

Öllum er heimilt að bjóða efni til kynningar á þinginu, svo fremi sem það lýtur að sálfræði og stenst fræðilegar kröfur. Ekki er gerður greinarmunur á fræðilegu og hagnýtu efni en allir fyrirlestrar og veggspjöld eiga að standast fræðilega skoðun.

Á þinginu verður einungis um frumflutning erinda á íslensku að ræða. Ef erindi hefur áður verið flutt hér á landi útilokar það flutning á þinginu. Ef erindi hefur einungis verið flutt erlendis er hægt að sækja um að flytja það á þinginu.

Efni sem kallað er eftir til kynningar á ráðstefnudegi

Ágrip vegna erinda / málstofa / vinnustofa / veggspjalda

  • Hámarkslengd ágripa miðast við 250 orð.
  • Titill ágripa, nöfn höfunda og stofnana eru ekki talin með.
  • Heiti ágripa skal vera með lágstöfum. Dæmi: Hver er tilgangur lífsins?
  • Ágrip skulu rituð á íslensku og er ætlast til að vandað sé til orðfæris og efnistaka
  • Ágrip  skal byggjast upp á eftirfarandi hátt og setja fyrirsagnir fremst þar sem við á: Inngangur, Efniviður og aðferðir, Niðurstöður, Ályktun

Málstofur og ágrip málstofa

  • Ef um málstofu er að ræða skal tiltaka heiti og efni málstofu, hverjir taka þátt og uppbyggingu.  Ágrip skal senda samhliða, athugið að senda ágrip fyrir hvert erindi og að setja heiti málstofu efst í texta

Vinnustofur

  • Ef um vinnustofu er að ræða skal tiltaka efni og skipulag vinnustofu og hverjir verða með framsögu og taka þátt.


Annað sem fellur ekki undir ofangreint, lýsið nánar

Skilafrestur ágripa er til miðnættis 1. mars 2026.

Ef einhver fyrirspurnir eru varðandi ágripin vinsamlegast sendið póst til Kristjönu  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Skilafrestur ágripa verður til miðnættis 1. mars 2026.

Ráðstefnuhaldarar

Athygli Conferences LOGO

Athygli ráðstefnur
Hallgerðargata 13, Regus 3. hæð
105 Reykjavík

Kt. 520199-2929

thorunn@athygliradstefnur.is

Lógó